fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Eyjan

Sjötugur Young

Egill Helgason
Fimmtudaginn 12. nóvember 2015 10:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi er sjötugur í dag. Hann var ógurleg stjarna á bernskuárum mínum, gaf út plötur sem næstum allir unglingar áttu, After the Gold Rush og Harvest, þetta er nánast eins og einkennismúsík áranna upp úr 1970, og svo var hann í líka hljómsveit með félögum sínum CSN – þá bættist Y við.

Hann er Kanadamaður, ólst upp í Winnipeg, og nei, hann er ekki af íslenskum ættum þótt spekúlasjónir hafi verið uppi um það.

Ég viðurkenni að ég hef ekki enst til að fylgja honum alla tíð, en á unglingsárum keypti ég allt sem hann gaf út, meira að segja plötur sem eru gleymdar og grafnar. Það er reyndar svolítið fallegt hvernig hann sneri stundum við blaðinu, ef hann sendi frá sér tónlist sem náði vinsældum mátti heita öruggt að næst gerði hann eitthvað sem var alveg vonlaust að næði hylli.

Eða hver man eftir Time Fades Away sem kom beint á eftir hinni ógurlegu metsöluplötu Harvest?

 

Timefadesaway

 

Young er vissulega mistækur, en virkar alltaf heill og sannur, hugsjónamaður. Ég sá hann á tónleikum í Barcelona 1986, þar sem skiptust á kassagítarmúsík og rafmagnaður graddi. Þá var ég ekki í miklum tengslum við hann en mér fannst gaman að heyra hann syngja It´s better to burn out than to fade away.

Annars legg ég þetta í hendur Óla Palla á Rás 2 sem dáir Neil meira en aðra menn. En þetta finnst mér með bestu lögum hans – og reyndar eitt af bestu lögum í þessari deild sem einhvern tíma var kölluð þjóðlagarokk (folk/rock).

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins

Orðið á götunni: Ofurvextir bjúgverpill sem hittir fyrir Seðlabankann sjálfan – draga úr virkni vaxtatækisins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Brynjar Níelsson gefur sjaldan loforð en lofar þó þessu

Brynjar Níelsson gefur sjaldan loforð en lofar þó þessu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sendir sínum gamla samstarfsflokki pillu – „Orðið svolítið mikið svona mussustemmning víða“

Sendir sínum gamla samstarfsflokki pillu – „Orðið svolítið mikið svona mussustemmning víða“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?

Svarthöfði skrifar: Hvað er líkt með hagfræðingum og veðurfræðingum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn