fbpx
Föstudagur 14.nóvember 2025
Eyjan

Vinur minn, austur-þýska íþróttastjarnan

Egill Helgason
Þriðjudaginn 10. nóvember 2015 13:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vinur minn afar góður var ungur afreksmaður í íþróttum – í sjálfu ríkinu þar sem sportidjótismi hefur risið hæst í sögunni, Austur-Þýskalandi.

Hann keppti í einni grein frjálsra íþrótta og var valinn til að fara í sérstakan afreksskóla þar sem unglingar voru þjálfaðir. Margir félagar hans kepptu á Ólympíuleikum, sumir unnu verðlaun, jafnvel gull. Sjálfur sá hann í gegnum bixið og hætti. Þá var hann kominn í ónáð hjá ríkinu, fékk ekki að mennta sig – það endaði með því að hann komst vestur 1985.

Hann er næstum nákvæmlega jafngamall og ég – ég spegla mig dálítið í honum. Hvernig hefði ævi mín orðið ef ég hefði alist upp undir alræðisstjórn þar sem maður er settur út í kuldann ef maður lýtur ekki valdboðinu? Vinur minn getur ekki leynt beiskju sinni þegar hann minnist æskuáranna.

Hann slapp þó við eitt, í akademíunni sem átti að gera hann að íþróttastjörnu voru ungmennin sett á lyf sem áttu koma þeim í fremstu röð. Það tókst, Þýska alþýðulýðveldið átti fleiri afreksíþróttamenn en nokkurt annað ríki í sögunni. Íþróttafrægðin var sjálft ídentítet ríkisins – það var varla neitt annað eftir.

Samfélagið var alveg staðnað, listir og menning þrifust lítt, en það var hægt að þjálfa fólk upp í að hlaupa hratt og hoppa hátt, eða gera það með sviksemi.

Vinur minn hætti í tæka tíð – hann komst undan lyfjasukkinu sem á endanum eyðilagði heilsu austur-þýska íþróttafólksins af kynslóð hans. Margir af félögum hans frá þessum tíma eru dánir – sumir af þeim Ólympíuverðlaunahafar. Þetta var ansi hár fórnarkostnaður.

Ég fór að hugsa um þetta þegar ég sá fréttir af því að í Rússlandi halda þeir enn uppteknum hætti frá gömlum tíma – það kemur á daginn sem marga grunaði að í kringum íþróttirnar þar er stunduð stórfelld lyfjaneysla, svo mjög að til tals kemur að banna Rússa frá alþjóðlegum keppnum. Rússar þræta auðvitað fyrir og telja þetta vera lið í alheimssamsæri gegn sér.

Líkt og í Þýska alþýðulýðveldinu er þetta auðvitað sjúkleikamerki á samfélaginu, það er eitthvað mikið að í ríkjum þar sem svona hegðun þykir sjálfsögð og eðlileg. Það er fokið í flest skjól þegar ríki sýna mátt sinn og megin með slíkum hætti.

 

sport270_v-teaserTop_zc-11a84362

Íþróttir voru aðalmálið í DDR undir lokin. Íþróttamönnum voru gefin lyf svo þeir næðu árangri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjólað í snjókomu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn