Grein eftir Brynjar Níelsson er dreift á Facebook. Þetta er undarleg samsuða, en þetta fær sín „like“ – til dæmis frá séra Hjálmari Jónssyni, presti í Dómkirkjunni, og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra.
Þetta á greinilega að vera hábeitt lógík hjá Brynjari, en er það ekki. Hann segir að „sama fólkið“ hafi gagnrýnt Framsóknarflokkinn fyrir að vilja afturkalla leyfi til moskubyggingar og hafi ekki viljað leyfa bandarískum prédíkara að koma til landsins eða rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni að byggja sitt guðshús.
Sama fólkið? Hverjir eru það? Á hvern er verið að skjóta?
Jú, einhverjir gagnrýndu orð rússneska rétttrúnaðarprestsins um samkynhneigða (reyndar varð líka fjaðrafok út af ummælum múslimaklerks í Öskjuhlíð um samkynhneigða) og svo voru aðrir sem voru að asnast til að reyna að kaupa upp miða á samkomu Franklins Graham í Laugardalshöll.
Var það þá sama fólkið? Jú, kannski er þarna mengi sem inniheldur fáeina einstaklinga – það skyldi þó aldrei vera.
Vandinn er að menn rugla öllu saman – stundum vitandi vits.
Þótt við leyfum trúfélögum að starfa og byggja sér hús, þá þýðir það ekki að við séum sammála öllu sem þeir boða. Við leyfum Vottum Jehóva að iðka sína trú – en við erum flest algjörlega á öndverðum meiði við þá hvað varðar blóðgjafir.
Við samþykkjum fæst afstöðu Páfagarðs til getnaðarvarna, eða rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar til samkynheigðra. Hið sama á við um kvennakúgun innan íslam. Við getum gagnrýnt þessi trúarbrögð og kreddur þeirra – rétt eins og við gagnrýnum íslensku þjóðkirkjuna.
En við neitum ekki þeim sem aðhyllast þessi trúarbrögð um að iðka þau – og að byggja hús til þess, enda kveður stjórnarskrá okkar á um trúfrelsi og bann við mismunun vegna trúarbragða.