fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Miðhöfnin og hin forljóta skemma

Egill Helgason
Sunnudaginn 15. júní 2014 23:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður, kenndur við Brim, skrifar grein í Fréttablaðið sem síðar verður að sérstakri frétt á Vísi.

Í greininni mótmælir Guðmundur fyrirhuguðum íbúðabyggingum við miðbik hafnarsvæðisins og segir að vernda þurfi svæðið fyrir atvinnulíf.

Nú er það svo í nýja aðalskipulaginu að gert er ráð fyrir að fiskihöfnin í Reykjavík haldi sér. Það er meira að segja horfið frá áformum um byggð í Örfirisey, enda óttuðust menn að hún kynni að þrengja að fiskihöfninni.

Höfnin er semsagt alls ekki á leiðinni burt.

En það er gert ráð fyrir íbúðahúsum við Mýrargötu. Þar er reyndar að rísa stórhýsi sem vekur mikinn ugg – það er algjörlega úr öllum hlutföllum miðað við byggðina á svæðinu og sorglegt að ekki skyldi takast að stöðva byggingu þess.

Að öðru leyti er þó enn gert ráð fyrir því að þarna verði áfram höfn fyrir hvalaskoðunarbáta og smábáta – með meðfylgjandi mannlífi, veitingahúsum og búðum.

Hluti hafnarsvæðisins hefur verið að þróast mjög skemmtilega síðustu árin, það byrjaði með því að Kjartan Halldórsson opnaði Sægreifann sinn – svo má eiginlega segja að ferðamenn hafi numið land þarna á svæði þar sem Íslendingar voru ekki mikið að skoða.

Spurningin er auðvitað með Slippinn – hann er þarna ennþá, en verður hægt að hafa hann áfram? Það væri auðvitað skemmtilegast.

En það er ekki mikið mannlíf í kringum stóra skemmu sem þarna stendur, forljóta og ótútlega. Ekki verður heldur séð að mikil starfsemi sé þar innandyra. Hún er í eigu Guðmundar í Brimi. Í kringum hana eru stór bílastæði þar sem enginn fær komast inn með bifreiðar sínar. Það yrði til mikilla bóta ef hægt væri að rífa skemmuna – nema svo ólíklega vilji til mögulegt sé að finna henni nýtt hlutverk.

Á þessum reit væri hægt að gera ýmislegt skemmtilegt – ef ekki væri fyrir þetta hús.

En það er reyndar merkilegt til þess að hugsa að 101 Reykjavík er bæði stærsta fiskihöfn landsins og langstærsti ferðamannastaðurinn. Þarna mætast semsagt helstu atvinnugreinar landsins.

 

url-13

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki