Ég rakst á óperusöngvarann Bryn Terfel í miðbænum í gærkvöldi. Hann var bara á skyrtunni, reyndar var mikið blíðviðri og hann virkaði afar kátur, en ég spurði hvort honum væri ekki kalt. Söngvarar eru alltaf hræddir við að kvefast.
Hann spurði hvort ég vildi lána sér jakkann minn.
Terfel er baritonsöngvari frá Wales, stórstjarna, með mikla rödd og útgeislun. Hann heldur tónleika á Listahátíð annað kvöld.
Tónlistardagskrá Listahátíðar er einstaklega flott þetta árið.
Í gærkvöldi lék Kammersveit Reykjavíkur hið einstæða verk Pierrot Lunaire í Hörpu. Í kvöld er það Sinfóníuhjómsveitin með kór og einsöngvara sem flytur þriðju sinfóníu Mahlers. Stjórnandinn er Osmo Vänskä, sá hinn sami og var eitt sinn aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands en fór síðan til Bandaríkjanna og hefur stjórnað stórhljómsveitum þar. Margir hafa látið sig dreyma um að fá Vänskä til að taka við aftur við Sinfóníuhljómsveitinni hér.
Svo má halda áfram að telja. Kathia Buniatishvili er frá Georgíu, ung kona sem er upprennandi stjarna píanósins. Hún heldur einleikstónleika með sérlega skemmtilegri dagskrá, spilar Ravel, Stravinsky, Chopin og Brahms.
Og Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar heldur áfram að rækta sitt innilega samband við breska tónskáldið Sir John Taverner. Kórinn hefur verið að flytja verk hans undanfarinn ár, og söng meðal annars í kirkju í London aðeins þremur dögum eftir andlát Taverners í nóvember síðastliðnum.
Þetta eru spennandi tónleikar, stórhuga dagskrá – myndlistin virðist líka vera sterk á þessari Listahátíð. Kannski meira um það síðar.
Bryn Terfel syngur alls konar tónlist, allt frá Wagnersóperum og yfir í þjóðlega tónlist. Hér er flutningur hans á hinu fallega bandaríska þjóðlagi Shenandoah sem margir hafa spreytt sig á.