Íslenskur bókamarkaður verður fátæklegri þegar bókaforlagið Uppheimar leggur upp laupana eins og hefur verið tilkynnt.
Uppheimar hafa starfað með mikilli reisn – þeir hafa gefið út Gyrði Elíasson, einn okkar helsta rithöfund, hann hefur verið þeirra skærasta stjarna.
Listi yfir útgáfubækur síðasta árið hefur að geyma frábærar bækur eins og Ljóðasafn Tomasar Tranströmers, Sem ég lá fyrir dauðanum eftir Faulkner, Ó – sögur um djöfulskap eftir Carl Jóhan Jensen, Árleysi alda eftir Bjarka Karlsson og Gengið með fiskum eftir Pálma Gunnarsson.
Maður hefur vonað að Uppheimar gætu staðið undir hinni menningarlegu útgáfu með því að gefa líka út bækur eftir höfunda eins og Jo Nesbö, en það virðist ekki hafa verið raunin.
Þetta eru semsagt sorgartíðindi. Þarna myndast skarð í bókaútgáfunni sem verður vandfyllt. En um leið fá Kristján, Aðalsteinn og aðrir hjá Uppheimum heila þökk fyrir framlag þeirra til íslenskra bókmennta.
Uppheimar hafa gefið út margar afar merkar bækur. Ein hins síðasta er Sem ég lá fyrir dauðanum eftir William Faulkner í frábærri þýðingu Rúnars Helga Vignissonar.