fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Eyjan

Eusebio – hetjan af HM og Laugardalsvelli

Egill Helgason
Sunnudaginn 5. janúar 2014 17:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta heimsmeistarakeppni í fótbolta sem ég fylgdist með var HM á Englandi 1966. Ég var ekki gamall, bara sex ára, en farinn að lesa blöðin. Þá var ekkert sjónvarp nema Kaninn – hann var ekki á mínu heimili. Þar var heldur ekki neinn fótbolti.

Ég man að strákum úr 5. flokki D í KR var smalað niður í gamla KR-hús, braggann sem nú er horfinn, og þar fengum við að horfa á kvikmynd sem sýndi helstu viðburði heimsmeistaramótsins. Ég held að ég muni rétt að um sama leyti – nokkru eftir að heimsmeistaramótinu lauk –  hafi ég fengið að sjá svipaða kvikmynd í Nýja bíói.

Eitt af því sem stóð upp úr var snilli Eusebios, frægasta leikmanns portúgalska landsliðsins, hann var fæddur í Mósambík sem þá var portúgölsk nýlenda. Eusebio var besti leikmaður mótsins, skoraði 9 mörk, lið hans varð í þriðja sæti.

Nokkru síðar kom út bók um Eusebio sem börn fengu lánaða á bókasöfnum og lásu spjaldanna á milli. Þar las maður að Eusebio hefði byrjað að spila með tuskubolta heima í Mósambík. Því var ekki furða að það væri talinn stóratburður í íslenskri íþróttasögu þegar Eusebio kom til landsins 1968 með liði sínu Benfica. Þetta var liður í Evrópukeppni, íslensk lið voru nýlega farin að taka þar þátt – fáum árum áður hafði KR leikið gegn Liverpool.

Leikurinn var sögulegur. Það var sett met í áhorfendafjölda á Laugardalsvelli. Áhorfendurnir voru 18 þúsund. Eusebio náði ekki að sýna snilli sína, varnarmenn Vals sáu til þess. Maður leiksins var Sigurður Dagsson, markmaður Vals. Leikurinn endaði 0-0, það þótti mikið afrek hjá Völsurunum.

Seinni leikurinn sem leikinn var í Portúgal spilaðist öðruvísi, þar sigraði Benfica 8-1. Á þessum tíma töpuðu íslensk lið oft hroðalega fyrir þeim erlendu – en þau vildu samt vera með. Íslenska markið í Portúgal skoraði Hermann Gunnarsson – hver annar?

Nú er Eusebio látinn, 71 árs að aldri. Hann er enn talinn með bestu knattspyrnumönnum sögunnar. Og vegna þeirra tengsla sem hér er lýst var hann óhemju vinsæll á Íslandi.

tumblr_ml1ld5uTOe1s6buiuo1_1280

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær