Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið staðfestir sitthvað sem hefur verið skrifað á þessa síðu.
Skoðanakönnuninni er reyndar slegið upp í Mogganum eins og Sjálfstæðisflokkurinn sé í stórsókn. Svo er auðvitað ekki, staða hans í borginni hefur sjaldan verið verri. Fylgið er aðeins 28,4 prósent. Í síðustu kosningum fékk hann 33,6 prósent og þótti lélegt.
Það gengur eftir sem spáð var að BF (Besti flokkur/Björt framtíð) myndi ekki geta haldið fylgi sínu eftir brotthvarf Jóns Gnarr. Nú verður beinlínis fylgishrun hjá BF, fylgið fer greinilega á Pírata – sem verða uppreisnaraflið í kosningunum – og á Samfylkinguna sem er með 23,5 prósent.
Meirihlutinn í borginni er fallinn – það eru mjög litlar líkur á Samfylking og BF nái að halda óbreyttu samstarfi. En þeim ætti ekki að verða skotaskuld úr að kalla til liðs við sig VG eða þá Pírata. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki neinn flokk sem hann getur starfað með að óbreyttu nema Framsókn.
En þá er til þess að líta að fylgi Framsóknar í borginni er í algjörum botni, er ekki nema 2,6 prósent.