fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Láglaunalandið Ísland – launþegar telja sig ekki bera ábyrgð á verðbólgunni

Egill Helgason
Föstudaginn 24. janúar 2014 12:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er alveg rétt hjá Styrmi Gunnarsyni að barnalegt er af Samfylkingunni að halda því fram að afstaða launþega til kjarasamninga sé ríkissjórninni að kenna.

Og það er líka rétt að ástæðurnar eru dýpri.

Kjarasamningum er hafnað sem sýnir glöggt að Samtök atvinnulífsins, Alþýðusambandið og ríkisstjórni hafa vanmetið stöðuna.

Þeir héldu að fólk myndi sætta sig við örlitlar kauphækkanir í skiptum fyrir stöðugleika.

Nú er kjarasamningum hafnað og líklegt að þurfi að bjóða miklu betur svo ekki komi til stórátaka á vinnumarkaði. Launþegar líta almennt ekki svo á að verðbólga – sem örugglega fer af stað – sé á þeirra ábyrgð.

Það er eðlilegt þegar horft er til þess að Ísland er að verða láglaunaland og ekkert sem bendir til þess að það breytist.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræðingur skrifar grein um þetta í Viðskiptablaðið:

Ísland er láglaunaland. Það blasir auðvitað við um lægstu launin en á ekki síður við um millitekjur og jafnvel um hæstu laun hjá hinu opinbera. Fólk sem fer utan í leit að vinnu fer ekki vegna þess að hér sé ekki vinnu að fá, því atvinnuleysi er blessunarlega lægra en víða í Evrópu. Fólk fer af landinu vegna launakjara. Það merkilega er að þetta á við hvort sem um er að ræða ómenntað, iðnmenntað eða langskólagengið vinnuafl. Og nú þegar semja á um laun er kannski tímabært að launþegar beiti rökfræðinni um landflóttann fyrir sig.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri