
Ég skrifaði pistil um daginn þar sem ég sagði að ríkisstjórnin þyrfti ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni, stjórnarandstaðan væri veik, meirihluti stjórnarinnar öruggur, engir þingmenn að hlaupa út undan sér og engin stór ágreiningsmál milli stjórnarflokkanna framundan.
En það er þó eitt mál sem getur skaðað ríkisstjórnina – eða réttar sagt hún getur skaðað sjálfa sig.
Úthlutun makrílkvóta.
Fari stjórnin út í að afhenda útgerðarmönnum makrílinn fyrir lítið sem ekkert gjald á það eftir að vekja mikla óánægju. Þarna eru um geysileg verðmæti að tefla.
Stjórnin virðist vera hikandi – en tilhneigingin virðist vera í þá átt að gefa kvótann eins og lesa má í pistli eftir Kristin H. Gunnarsson. Það má vera að hægt sé að færa einhver rök fyrir því, en það á eftir að mælast afar illa fyrir hjá þorra kjósenda.