

Í nýrri bók kemur fram að Clinton-hjónin, Bill og Hillary, halda lista – svartan lista.
Þetta mun vera excel-skjal þar sem er tilgreint hverja hjónin telja að sé óvinir sínir, hverjir eiga að hafa svikið þau, hverjir eru ekki í náðinni.
Virkar ekkert sérlega traustvekjandi hjá konu sem ætlar líklega að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna.
Þarna má finna ýmis nöfn, meðal annars John Kerry, núverandi utanríkisráðherra, og öldungadeildarþingmannnn Claire McCaskill.
Þetta þykir sýna að Hillary er langrækin. Það er varla góður eiginleiki fyrir þjóðarleiðtoga, en hefur þó fylgt ýmsum stjórnmálamönnum.
Sumir eru frægir fyrir að gleyma aldrei – á ensku er sagt revenge is a dish best served cold.
Það eru til pólitíkusar sem nota tækifærið þegar þeir komast til valda fyrst og fremst til að jafna metin við óvini sína, meinta eða raunverulega.
Forvitnilegt væri að vita hvort fleiri stjórnmálamenn styðja sig við slíka lista – eða hvort kannski er bara nóg að hafa þá í kollinum?
