Kvikmyndahöfundurinn Agniezka Holland sem er gestur á evrópskri kvikmyndaviku í Reykjavík er stórmerkilegur fulltrúi pólskrar kvikmyndahefðar.
Fáar þjóðir þjáðust jafnmikið í heimsstyrjöldinni síðari og Pólverjar– og reyndar hefur saga Pólverja einkennst af samfelldum yfirgang stórþjóðanna í kring. Það var ekki síst í kvikmyndunum sem Pólverjar gerðu upp þessa reynslu sína – Holland náði að vinna með Andrzej Wajda, stórmeistara pólskrar kvikmyndagerðar eftir stríðið. Hún skrifaði með honum handritin að Danton og Korczak.
Með öðrum meistara, Kieslowski, skrifaði hún handritin að litamyndunum, Bláum og Hvítum.
Sjálf á hún svo merkan leikstjóraferil. Frægasta myndin hennar er Europa, Europa, hún fjallar um gyðingastrák sem tekst að leyna uppruna sínum í stríðinu og gengur í Hitlersæskuna. Í myndinni Bitur uppskera er líka fjallað um gyðinga í stríðinu, í þetta sinn um konu sem er í felum á pólskum bóndabæ.
Þannig eru flestar myndir Agniezka Holland að einhverju leyti pólitískar – hún leikstýrði líka mynd um prestinn Jerzy Popieluszko, sem var myrtur af kommúnistum 1984, en morðið gróf mjög undan valdi þeirra.
Svo má reyndar nefna útúrdúra á ferli hennar, mynd sem er sjaldan talað um og heitir Total Eclipse. Þar leikur Leonardo di Caprio franska skáldið Rimbaud en David Thewlis leikur Verlaine. Eins og vitað voru þessi ungu skáld upptekin af því að rugla skynfærin – og svo voru þeir elskendur um tíma. Ástarsenur úr myndinni þykja nokkuð óþægilegar fyrir di Caprio, þ.e. ímynd hans sem Hollywoodstjörnu, og myndin er ekki mikið í dreifingu.
Siðustu árin hefur Agniezka Holland starfað mikið í sjónvarpi og leikstýrt þáttum af Treme, The Wire og The Killing.