fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kominn tími til að hugsa í lausnum, ekki eilífum ágreiningi

Egill Helgason
Þriðjudaginn 10. september 2013 07:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er látið eins og ekki séu til neinir valkostir við að hafa flugvöll í Vatnsmýri, eins og engar málamiðlanir komi til greina. Málið er orðið eilíf uppspretta kergju og vanlíðunar – það er alltaf hægt að nota það til að búa til leiðindi milli landsbyggðar og höfuðborgar. Einhvern tíma verður þetta að hætta.

Það er ljóst að flugvöllur þyrfti að vera talsvert minni en sá sem er í Vatnsmýri. Það er alveg ástæðulaust að flugvöllur í Reykjavík sé varaflugvöllur fyrir Keflavík. Aðrir flugvellir gegna því hlutverki. Flugvélar í innanlandsflugi þurfa styttri flugbrautir en áður, og það er sagt að þær eigi eftir að styttast enn.

Svo hentar völlurinn í Vatnsmýri afar illa fyrir annað flug vegna þess hvað hann er nálægt þéttustu borgarbyggð á Íslandi. Æfingaflug á ekki heima þar og ekki einkaflug með smáflugvélum eða sportflug – hvað þá flug einkaþota.

Sá valkostur að flytja flugið til Keflavíkur er ekki góður. Þau rök eru nokkuð skotheld að það sé of langt þaðan í bæinn fyrir fólk sem þarf að skreppa út til og frá borginni. Það myndi ekki breytast nema menn færu út í mikil umferðarmannvirki, þannig að væri hægt að komast til Keflavíkur á 20-25 mínútum. Að vissu leyti tapar landsbyggðin reyndar á þessu. Það væri að mörgu leyti hentugt bæði fyrir íbúa hennar og fyrir ferðamenn að geta skipt yfir í flugvél í innanlandsflugi strax á alþjóðaflugvellinum.

Eins og staðan er núna þurfa allir sem vilja gera þetta að koma til Reykjavíkur og gista þar.

Sjúkraflugsrökin eru mikið notuð í umræðunni um flugvöllinn. Það er nokkuð ofmælt að sjúkrahús þurfi að vera við endann á flugbraut. Staðreyndin er sú að langflest tilvik sem koma á Landspítalann fara í bíl, það á líka við um bráðatilvikin. Þar skipta mínúturnar líka máli. Ættum við kannski líka að velta fyrir okkur hvort spítalalinn væri ekki betur staðsettur utan við þéttustu byggðina í miðjunni?

Það má vel hugsa sér annað og kannski betra fyrirkomulag sjúkraflugs en að hafa miðstöð þess á Akureyri, þaðan sem flugvélar Mýflugs (sem annast sjúkraflugið) þurfa að komast um landið til að ná í sjúklinga. Þarna þarf að horfa á mál í víðu samhengi við heilbrigðiskerfi sem er í afar lélegu ásigkomulagi – bæði hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu og úti á landi.

Það er kominn tími til að hugsa í lausnum. Reykjavíkurflugvöllur þarf alls ekki að vera það ferlíki sem hann er. Landið undir honum er afar verðmætt fyrir framtíðarþróun borgarinnar. Seinna er líklegt að byggð þar myndi teygja sig með brú út á Álftanes – það hefur verið stungið upp á að færa flugvöllinn út á landfyllingar í Skerjafirði eða jafnvel hlaða garða um hann þar.

Það er ein hugmyndin. Önnur gæti verið að minnka flugvöllinn mikið og setja hluta hans út á landfyllingar og skapa þannig rými fyrir byggð.

Svo er hér ein hugmynd sem virkar ansi vel – og aftur með þeim formerkjum að flugvöllurinn þarf alls ekki að vera eins stór og hann er nú.

Nýr flugvöllur

Eins og við sjáum er þarna kominn flugvöllur á Bessastaðanes. Spítali hefur verið settur þar við hliðina á, það er þó kannski óþarfi að hann sé svo nálægt flugvellinum. Aðflugslínur eru aðrar en á Reykjavíkurflugvelli, þær eru yfir fámennari byggð og líka mun hærra yfir byggðinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki