Þetta er löng grein og nokkuð tæknileg eftir hagfræðinginn Ólaf Margeirsson sem hefur numið í Bretlandi en er búsettur í Frakklandi nú.
Hann var nokkrum sinnum gestur hjá mér í Silfri Egils.
En mér sýnist þetta vera besta úttektin á skuldaaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Þarna er fjallað um þær í hlutfalli við hvað síðasta ríkisstjórn gerði, með tilliti til verðtryggingarinnar, hins háa vaxtastigs á Íslandi, gjaldeyrishaftanna, kosti og galla þess að skattleggja þrotabú bankanna og svo ræðir hann tekjuhlið aðgerðanna og efnahagsáhrif. Einnig nefnir Ólafur ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða sem er dragbítur.
Þetta er yfirveguð grein sem ég mæli með, enda er Ólafur ómengaður af hinni mannskemmandi íslensku flokkapólitík.