fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Velmegunin byggir á innflytjendum – eða hvað?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 26. desember 2013 13:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er erfitt að spá næstum tvo áratugi fram í tímann. Í Guardian má lesa spá Center for Economic and Business Research þar sem segir að Bretland verði orðið stærra efnahagsveldi en Þýskaland árið 2030.

Það má vel vera – þessi spá getur ræst, en svo getur hún líka brugðist.

En það er merkilegt að sjá á hverju spáin byggir, nefnilega ekki síst á íbúasamsetningu Bretlands. Hún ræðst aftur af innflytjendum.

Innflytjendur eru fjölmennir í Bretlandi – og þeir eignast gjarnan mörg börn.

Á móti segir að fólksfjölgunarþróun gæti orðið óhagstæð í Þýskalandi.

Merkilegt er svo að setja þetta í samhengi við umræðu um innflytjendamál í Bretlandi. Þar hefur Íhaldsflokkurinn verið að ganga býsna langt, að nokkru leyti af ótta við að missa fylgi sitt til Ukip, flokks Nigel Farage. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fordæmir nýja löggjöf um innflytjendamál. David Cameron hótar líka að segja nei við frekari stækkun Evrópusambandsins ef ekki eru gerðar ráðstafanir til að stöðva fólksflutninga frá  löndum eins og Rúmeníu og Búlgaríu.

En það er að sönnu þversagnakennt ef velmegun í framtíðinni byggir á innflytjendum sem verða fyrir barðinu á svo neikvæðri umræðu?

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi