fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Ekki sérlega sterkur listi hjá Bjartri framtíð

Egill Helgason
Föstudaginn 13. desember 2013 15:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björt framtíð hefur birt lista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar – maður spyr reyndar hvað liggur á, það er hálft ár til kosninga?

En listinn er kominn fram og er, ja, það verður að segja eins og er – hann er ekki sérlega sterkur.

Þarna er Björn Blöndal, aðstoðarmaður Jóns Gnarr, í fyrsta sæti. Björn nánast óþekktur maður – og á alveg eftir að sanna sig fyrir kjósendum.

Fyrir neðan eru borgarfulltrúar úr Besta flokki sem hafa ekki verið sérlega áberandi, Elsa Yeoman og Eva Einarsdóttir. Mesta athygli vekur Ilmur Kristjánsdóttir í þriðja sæti.

Í neðstu sætum listans, heiðurssætunum, eru svo borgarfulltrúarnir Páll Hjaltason, Karl Sigurðsson og Einar Örn Benediktsson, þeir ætla semsagt ekki að vera með lengur.

Þessi listi er satt að segja afskaplega ólíklegur til að ná fylgistölum Besta flokksins, þannig að það gæti verið lag fyrir aðra flokka.

Maður tekur líka eftir því að þorri þeirra sem eru á framboðslistanum eru einhvers konar listafólk. Það gekk í Besta flokknum, þegar Jóns Gnarr naut við, en skyldi það ganga nú þegar framboðið nefnist Björt framtíð og er hluti af venjulegum stjórnmálaflokki?

Samfylkingin teflir líklega fram Degi B. Eggertssyni, Björk Vilhelmsdóttur og Hjálmari Sveinssyni í efstu sætum en óvíst er hverjir verða í efstu sætum hjá Vinstri grænum, hvort t.d. Sóley Tómasdóttir heldur áfram. Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur verið nefnd sem hugsanlegur arftaki hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki