Mikið er talað um það að skólinn eigi að efla lýðræðisvitund og skilning á jafnrétti og mannréttindum. Námskrá grunnskólans sem var samþykkt á síðasta kjörtímabili er öll í þessa veruna.
Það þykir gamaldags að halda því fram að skólinn eigi fyrst og fremst að efla þekkingu.
En án þekkingarinnar er engin gagnrýnin hugsun – þekkingin er forsendan. Og skólinn er ekki málfundur um lýðræði.