fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Áhrif skuldamála á fylgi flokkanna

Egill Helgason
Fimmtudaginn 5. desember 2013 08:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athyglisverð er niðurstaða skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar sem Morgunblaðið birtir í morgun. Þarna er reynt að mæla áhrif skuldamála á fylgi flokka og ríkisstjórnar.

Auðvitað eiga hlutirnir eftir að setjast betur – en merkilegt er að sjá að þetta hefur ekki áhrif á heildarfylgi ríkisstjórnarinnar. Það er 43,4 prósent.

Framsókn rýkur hins vegar upp eftir niðursveiflu sem hefur staðið allt síðan í kosningunum í vor, mælist með 20,1 prósenta fylgi. Þetta er samt enn meira en 4 prósentustigum frá fylgi flokksins í kosningunum.

Sjálfstæðisflokkurinn missir hins vegar fylgi, er aðeins með 23,3 prósent sem þykir afar slakt á þeim bæ.

Það er athyglisvert að sjá að Samfylking, VG og Björt framtíð hafa svipað fylgi allir flokkarnir, Samfylking er með 15,8, VG með 14,1, Björt framtíð með 13,7.

Það er semsagt enginn afgerandi forystuflokkur stjórnarandstöðumegin, en þegar Píratar bætast við með sín 7,7 prósent hefur stjórnarandstaðan talsvert meira fylgi en ríkisstjórnin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð