Tónlist er hollari en íþróttir, stendur í þessari grein sem birtist á vef YLE, finnska sjónvarpsins. Greinin er á sænsku.
Þarna segir að tónlist sé besti vinur heilans og geti opnað heilastöðvar sem séu lokaðar – og einnig geri tónlistin fólk hæft til að fást við önnur verkefni.
Greinin byggir á rannsóknum sem hafa farið fram í Helsinki og er beinlínis fullyrt að tónlist sé miklu heilsusamlegri en íþróttirnar.
Þarna er hvatt til að meiri tónlist sé kennd í skólum, enda efli hún einbeitingu og hæfileikann til að skilja og hugsa.
Raunar kemur fram að það sé dálítill munur eftir því hvaða tónlist þetta er. Klassísk tónlist inniheldur til dæmis meiri upplýsingar en popptónlist. Í greininni er sérstaklega mælt með óperunni La Traviata eftir Verdi.