Í Kiljunni í kvöld fjöllum við um Sæmd, nýja skáldsögu eftir Guðmund Andra Thorsson. Bókin gerist í Reykjavík á seint á 19. öld, en sögupersónurnar eru meðal annarra lærdómsmennirnir Benedikt Gröndal og Björn M. Olsen. Við förum út á Granda þar sem er að finna hús Gröndals – í heldur einkennilegu ástandi.
Ólafur Haukur Símonarsson talar um æviminningar sínar, en nú er komið út þriðja bindið sem nefnist Skýjaglópur skrifar bréf.
Við förum til Vestmannaeyja og hittum þar Ásmund Friðriksson alþingismann. Ásmundur hefur skrifað bók um uppvöxt sinn í Eyjum sem nefnist Ási grási í Grænuhlíð. Hann myndskreytir bókina sjálfur. Þarna koma við sögu ýmsar litríkar persónur, til að mynda frændi Ásmundar, Einar í Betel, sem sumir telja að hafi verið mælskasti maður á Íslandi.
Gagnrýnendur þáttarins fjalla um tvær bækur: Skuggasund eftir Arnald Indriðason og Við Jóhanna eftir Jónínu Leósdóttur.
Sá merki maður Benedikt Gröndal er aðalpersónan í Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson. Gröndal var skáld, náttúrufræðingur, málfræðingur, rithöfundur. En hann átti erfitt uppdráttar í smábænum Reykjavík, rakst illa í flokki, og átti til að drekka með dónum þegar sá gállinn var á honum.