Fór á Kraftwerk í gærkvöldi – það var mjög skemmtilegt spil tóna og mynda.
En það sem sló mig mest var hvað þessi gamla vestur-þýska raftónlistarsveit er rómantísk.
Þarna er fjallað um framtíðarsýn eins og hún var á áttunda áratugnum. Það eru hraðlestir, gírahjól, hraðbrautir þar sem aka um Mercedes Benz bifreiðar og Volkswagen. Samskiptamátinn er aðallega útvarpið.
Maðurinn, hugarafl hans og vöðvar, mynda eina heild með tækninni. Tölvurnar sem eru sýndar eru gamaldags – þetta er heimur fyrir Facebook, farsíma og internetið – allan þann glundroða.
Með þessu er sungið í gegnum tölvu einhvers konar evró-babl. Orð eins og aero-dynamik, autobahn, en tónlistarmennirnir standa kyrrir á sviðinu á stöðvum sínum, í búningum eins og úr Star Trek.
Afar skemmtilegt – og innilega rómantískt.