Hér eru mikil katastrófufræði sem er forvitnilegt að velta fyrir sér.
Hvað ef allur ís á jörðinni bráðnaði?
National Geographic setur þetta upp á kortum. Sjávarborð hefur þá hækkað um 216 fet, samkvæmt tímaritinu.
Við sjáum hvernig strandlínur hafa breyst. Danmörk er horfin, sem og Flórida og stórir hlutar af austurströnd Bandaríkjanna. Í Egyptalandi heyra Alexandría og Kairó sögunni til, Bangladesh er komið undir vatn og strandlengja Indlands. Ef við skoðum Ísland, þá er Suðurlandsundirlendið horfið.
Það má svo deila um hversu líklegt er að þetta gerist. Við lifum nú á hlýskeiði milli ísalda – fyrir 20 þúsund árum náði heimskautajökull til New York, eins og segir National Geographic. En hvað fer hlýnun jarðar vegna gróðurhúsaáhrifa langt með að breyta því?
Á þessu korti frá National Geographic sjáum við að Danmörk er horfin, sem og Holland, mikið af austurströnd Englands, strönd Frakklands við Biskayaflóa, mikið af strönd Eystrasaltsins – og Suðurlandsundirlendið á Íslandi.