Í Þýskalandi eykst mjög þrýstingur á að bjóða Edward Snowden hæli. Áhrifamenn í flokki Merkels kanslara eru meðal þeirra sem hvetja til þessa. Og það er forvitnilegt að sjá forsíðu nýjasta heftis hins áhrifamikla fréttatímarits Der Spiegel.
Kannski hefðum við Íslendingar átt að bjóða honum hingað meðan tækifæri var til – það er varla hægt að efast um það lengur að uppljóstranir Snowdens eru góðar og gagnlegar.
Fyrirsögnin er:
Hæli handa Snowden! Sá sem segir sannleikann fremur ekki glæp!