Tillögur um skuldamál eiga að vera tilbúnar fyrir mánaðarmótin – eins og oft hefur verið kunngjört.
Sérstök nefnd hefur setið á rökstólum, en það mun þó ekki vera beðið eftir niðurstöðum hennar, heldur því að stjórnarflokkarnir komi sér saman um hvernig pakkinn á að líta út.
Það er ekki einfalt mál, því djúp gjá hefur verið milli Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í skuldamálunum.
Það sem hefur lekið út, um að heimilt verði að greiða séreignarsparnað inn á húsnæðislán, er auðvitað ekki skuldaniðurfelling, heldur er fólki einungis heimilað að fara úr einu sparnaðarformi í annað. Þetta er ekki stór aðgerð, nær því fremur að vera eins og plástur á sjúkt kerfi.
En flokkarnir eiga semsagt eftir að komast að niðurstöðu um sjálft stóra loforðið, skuldaniðurfellinguna. Framsóknarmenn vilja reyna að standa við kosningaloforð sín – annað gæti verið lífshættulegt fyrir flokkinn – en innan Sjálfstæðisflokksins er talað um að þurfi að „lágmarka skaðann“ af loforðum Framsóknar.
Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben þurfa að finna leið út úr þessu og því gengur á með miklum fundahöldum þessa dagana. Fólk bíður í ofvæni eftir útkomunni.