fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

KEA í hjarta Reykjavíkur?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 27. nóvember 2013 23:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún er mjög sorgleg saga Austurstrætis 16, eins sögufrægasta húss í Reykjavík.

Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni, þetta er fyrsta stórhýsið sem hann teiknaði. Upphaflega var þetta hús stórkaupmannanna Natans & Olsen.

Húsið er það sem hefur verið kallað steinsteypuklassík – það er reist af feiknarlegum stórhug. Inngangurinn á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis er sérlega glæsilegur, með stórri súlu og fallegri lágmynd fyrir ofan.

Í stigagangi hússins eru merkilegar styttur eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal og sýna brot úr verslunarsögu Íslendinga.

Lengst af var Reykjavíkurapótek þarna til húsa en á efri hæðum voru meðal annars skrifstofur borgarinnar og fór ágætlega á því.

En svo fór skemmdarfýsnin á kreik, rétt eins og hafði gerst með Nýja bíó áratug áður. Hinar fornfrægu og sögulegu innréttingar apóteksins voru rifnar út og stofnaður veitingastaður. Hann lifði stutt, svo kom annar veitingastaður og koll af kolli – allt hefur það farið rakleitt á hausinn.

Braskari eignaðist húsið og fór að leigja efri hæðirnar svo dýrt að enginn hafði efni á að vera þar – nema undir það síðasta skilanefnd Landsbankans.

Nú er fasteignafélag sem nefnist Reginn búið að eignast húsið og ætlar að leigja það Keahótelum. Það stendur til að innrétta þarna glæsihótel. Húsið hentar kannski ágætlega til þess þótt líklega þurfi að gera miklar breytingar að innan – ytra byrðið er friðað.

Það væri kannski kátlegast ef merki KEA yrði sett upp á áberandi stað í hjarta Reykjavíkur. Það verður eiginlega að gerast. Mér skilst reyndar að gamalt KEA skilti sé á lausu einhvers staðar á Akureyri.

En í framhaldi af þessu er áhugavert að pæla í fasteignamarkaðnum í Reykjavík. Þau eru ekki mörg fjárfestingartækifærin á Íslandi núna – lífeyrissjóðirnir eru búnir að kaupa bæði Bernöftstorfuna og Orkuveituhúsið. Gætu líklega keypt bróðurpartinn af fasteignum á landinu.

Og svo er þessi hrikalegi uppgangur á hótel- og gistimarkaðnum. Ef kemur hótel í Aðalstræti 16 ofan á hótel við Hörpu, hótelbyggingar á Laugavegi og hótel á Landsímareitnum – ja, þá ætti þörfinni fyrir gistirými kannski brátt að vera fullnægt?

apotek_ps_um1952_1965

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð