Í þættinum Viðtalinu sem er á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld ræði ég við Sölva Sveinsson, skólastjóra Landakotsskóla.
Sölvi er þrautreyndur skólamaður, var áður skólameistari Fjölbrautarskólans í Ármúla og síðar skólastjóri Verslunarskólans.
Hann er líka rithöfundur og hefur gefið út bækur um íslenskt mál og málnotkun, til að mynda Táknin í málinu og Sögu orðanna.
Eins og kemur fram í viðtalinu hefur Sölvi mikla þekkingu á skólamálum og er óhræddur við að tjá skoðanir sínar um til dæmis kjör kennara, styttingu grunn- og framhaldsskóla, einkarekstur í skólakerfinu, læsi, kennaramenntun og fleira.
Hér má sjá síðu þáttarins á vef RÚV. Við skiptumst á með viðtölin Þóra Arnórsdóttir, Eva María Jónsdóttir, Bogi Ágústsson og ég.