Óskar Bergsson kemur aftur í borgarpólitíkina – sem fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins. Óskar hefur varið mörgum árum í borgarpólitíkina, fyrst á tíma R-listans og svo sem formaður borgarráðs á tíma samstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í borginni 2008 til 2010.
Í öðru sæti er Guðrún Bryndís Karlsdóttir, en hún hefur vakið athygli fyrir harða baráttu gegn byggingu nýs Landspítala. Guðrún Bryndís starfaði um tíma í flokki Hægri grænna.
Nokkuð kom þessi uppstilling á óvart. Það er ekki nema 22. nóvember, líklega verða bæjar- og sveitarstjórnakosningar 31. maí á næsta ári.
Þangað til er meira en hálft ár. Það ætti semsagt að vera nógur tími til að raða á lista. Það væri forvitnilegt að vita hvað fór fram bak við tjöldin áður en framboðslistinn var settur saman. Á það hefur verið bent að Óskari hafi sjaldan vegnað vel í kosningum eða prófkjörum.
En nú er Framsókn semsagt komin með sitt framboð og Sjálfstæðisflokkurinn búinn að halda prófkjör. Uppi eru vangaveltur um að listinn sem kom út úr því kunni að breytast en í rauninni verður varla séð að neinum verði hnikað úr þremur efstu sætunum þar, nema kannski Júlíusi Vífli Ingvarssyni.
Það verður svo að segjast eins og er að það er ekkert sérstakt nýnæmi að lista Framsóknar. Óskar Bergsson segist vilja tryggja flugvöllinn í sessi – á sínum tíma vildi hann færa völlinn.
Nú er komið að Samfylkingu, Vinstri grænum og Bjartri framtíð. Þessir flokkar stilla varla upp fyrr en eftir áramótin. Það er ekki slæmt fyrir þá að ríkisstjórnarflokkarnir séu búnir að sýna á spilin. Líklegt er að Dagur B. Eggertsson og Hjálmar Sveinsson haldi áfram hjá Samfylkingu – það er spurning með Oddnýju Sturludóttur – en Björt framtíð hlýtur að vera að leita að nýju og fersku borgarstjóraefni. Það fer ekki hver sem er í fötin af Jóni Gnarr.