Ég hef áður gert að umræðuefni frekju Alþingis gagnvart skipulagsmálum í miðbænum.
Skýringarnar eru held ég ekki mjög flóknar. Forseti Alþingis er eins konar ráðherraígildi. Hann hefur samt sáralítið að sýsla – kraftar síðustu forseta hafa einkum farið í að þenja út starfsemi þingsins. Þannig hefur orkan farið í alls kyns bygginga- og skipulagssýsl – á sama tíma og virðing Alþingis hefur verið í algjöru lágmarki.
Forsetarnir hafa lítið gert til að bregðast við því. Hin efnislega sýnd er þeim hugleiknari en hin pólitíska reynd.
En forsetarnir vilja setja mark sitt á eitthvað – og það virðist helst vera mælt í skrifstofuhaldi og húsakosti.
Nú vill forsætisnefnd Alþingis hnekkja skipulagsvaldi Reykjavíkur á svokölluðum Landsímareit. Þeim sem þar sitja finnst ekki nógu fínt að fá þangað hótel. Tíðkast nú hin breiðu spjótin, borgin á meira að segja að hafa brotið stjórnarskrána.
Samt er það svo að rétt hjá Alþingi er annað hótel, Hótel Borg, hið elsta í bænum. Bak við á Kirkjutorgi er komið hótel sem nefnist Kvosin.
En Alþingi hefur ekki verið aðgerðalaust – skrifstofur þess teygja sig út um allan miðbæinn, um nánast alla norðurhlið Aðalstrætis, yfir í gamla Moggahúsið, um Kirkjustræti og Vonarstræti.
Reyndar er þetta tímabundið ástand, því á vef Framkvæmdasýslu ríkisins má kynnast miklum byggingaáætlunum. Til að rýma fyrir þeim var til dæmis fært hús úr Vonarstræti yfir í Tjarnargötu. Þetta hefur tafist aðeins, kannski vegna ástandsins í efnahagsmálunum.
Síðasta forseta þingsins, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, var svo mikið niðri fyrir vegna þessa að hún vildi taka mestallt skipulagsvald í Miðborginni undir Alþingi.
En fyrstu orðin sem manni dettur í hug þegar maður heyrir af þessu eru: Fordild, snobb, hégómi.