Hún er þörf fyrirspurn Elínar Hirst um sykurausturinn hjá Mjólkursamsölunni.
Kannski myndi einhver segja að þetta komi Alþingi ekki við, en staðreyndin er sú að Mjólkursamsalan er einokunarfyrirtæki, nánast allsráðandi á markaði.
Vörur frá þessu fyrirtæki eru í hverri einustu matvörubúð á landinu í miklu magni. Sykursukk þess er tilræði við lýðheilsu.
Mjólkursamsalan ber því við að hún framleiði líka vörur án sykurs. En þær vörutegundir eru afar fáar, öll vöruþróunin virðist miða við sykraða jukkið. Og það er eins og vörunum sem eru sykraðar eins og sælgæti sé beinlínis beint að börnum.
Elín höfðar til betri vitundar stjórnenda fyrirtækisins, biður þá að framleiða hollari vöru. En svo mætti líka hugsa sér að tímabært sé að vinda ofan af einokun Mjólkursamsölunnar.