Bæði Styrmir Gunnarsson og Davíð Oddsson gleðjast yfir ráðningu Ásmundar Einars Daðasonar í starf aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Þeim þykir það vera til marks um að fylgja eigi tillögum hagræðingarnefndarinar eftir – og það má vel vera.
Annað er líka áhugavert í þessu sambandi.
Þarna er einn helsti Evrópusambandsandstæðingur á Íslandi – maður sem var til skamms tíma formaður Heimssýnar – kominn inn á skrifstofu sjálfs forsætisráðherra. Það finnst Davíð og Styrmi sjálfsagt góð tíðindi.
Það sem hefur gerst síðan í kosningunum er að Framsóknarmenn hafa herst í andstöðunni við ESB. Í upphafi var Sigmundur Davíð enginn sérstakur andstæðingur aðildar, en nú er annað uppi á teningnum. Þetta er ekki bara vegna bandalagsins sem er á milli forsetans og Framsóknar, heldur eru Framsóknarmenn líka ákafir að loka leiðinni inn í ESB sem fyrst vegna stjórnarsamstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar tvístígandi. Bjarna Benediktssyni liggur ekkert á að loka á ESB. Meðan umsóknin er enn opin er auðveldara fyrir Sjálfstæðisflokkinn að taka upp samstarf við Samfylkinguna og Bjarta framtíð – ef núverandi stjórn springur á limminu.
Það kemur fleira til. Þrýstingur um að halda aðildarferlinu áfram er mikill frá atvinnulífinu, enn er óvíst hvernig hægt verður að losa um fjármagnshöftin og gera krónuna aftur gjaldgenga og svo er í burðarliðnum fríverslunarsamningur milli ESB og Bandaríkjanna sem væri afar óheppilegt fyrir Íslendinga að standa utan við.
Bjarni er semsagt ekkert að flýta sér í ESB málum, Framsókn liggur á, en Davíð og Styrmir gerast óþreyjufullir og sjá von í ráðningu Ásmundar.