fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Stórar eyður í Íslandsögunni

Egill Helgason
Sunnudaginn 10. nóvember 2013 12:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fór suður í Keflavík um daginn með Jóni Kalman Stefánssyni – tilefnið er ný skáldsaga hans, Fiskarnir hafa enga fætur.

Eitt af því sem við ræddum þarna í gamla heimabænum hans var hveru stórar eyður væru í söguþekkingu og sagnaritun.

Til dæmis er það svo að ekki er til neitt sagnfræðirit sem gerir varnarliðinu (sumir vildu kalla það hernám) almennilega skil. Þá meina ég ekki út frá herfræðilegu sjónarhorni, heldur því hvernig samskipti Íslendinga og hersins voru, hermanginu svokallaða, menningaráhrifunum – sem líka var kölluð hugarfarsspilling –, hinum endalausu deilum um herinn, þeim sem urðu ríkir á hernum og þeim sem fengu atvinnu hjá honum. Og hvernig við reyndum að mjólka herinn, en vorum í leið með reglur eins og að svartir hermenn fengju ekki að vera í liðinu.

Þarna er í rauninni stórt gat.

Á Facebook var umræða um að það vantaði líka almennilega sögu Sambands íslenskra samvinnufélaga. Um það hvernig þessi merka hreyfing varð svo valdamikil, um hin miklu ítök hennar í stjórnmálum og hvernig hún spilltist smátt og smátt, gliðnaði loks í sundur – en varð grunnurinn að viðskiptaveldi fyrrverandi starfsmanna SÍS sem sáu sér leik á borði.

Þarna er önnur eyða. Það þarf að skrá þessar sögur til að við áttum okkur á stóru línunum í lýðveldissögu okkar. Því miður held ég að við séum býsna blind gagnvart henni.

371306555_5dadae12f6_z

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð