Landinn var með umfjöllun um sturtuvenjur í íslenskum sundlaugum. Reglurnar eru einfaldar, allir skulu baða sig naktir. Konur sér, karlar sér. Ungir og aldnir.
Þetta þykir okkur eðlilegt og fólki af sumum þjóðum þykir þetta ekki tiltökumál, til dæmis er Þjóðverjum sama og Skandínövum mestanpart. Þeir eru frekar afslappaðir gagnvart nekt.
En fólk frá vesturheimi getur orðið skelfingu lostið. Það er teprulegra.
Reyndar er líklegt að í Bandaríkjunum væri þetta aldrei tekið í mál – fólk fer í gegnum lífið þar án þess að sýna sig nakið.
Annað sem þætti óhugsandi þar er að fullorðið fólk og börn séu saman í sturtuklefa – allir berir.
Reyndar finnst manni nánast eins og tímaspursmál hvenær einhver fer að gera mál úr því hér.