Hér er býsna góð spurning:
Getur maður hlustað á hljómsveitarstjóra, sem hefur lýst yfir stuðningi við stefnu Pútíns gegn samkynhneigðum og réttlætt ofsóknirnar gegn Pussy Riot, stjórna Tsjaikovskí og Shostakovits?
Tsjaikovskí var samkynhneigður en Shostakovits mátti sæta eilífum ofsóknum frá hendi kúgunarvalds.
Spurningin er kannski ekki síður hvort maður nennir að hlusta verk eftir þessi tónskáld í meðförum slíks hjómsveitarstjóra – hvort maður hafi áhuga á því?
Sá sem hér er átt við er Valeri Gergiev, aðalstjórnandi í Marinskí leikhúsinu í Pétursborg og London Symphony Orchestra. Hann er sérstakur einkavinur Pútíns. Hann hefur meira að segja fengið viðurkenninguna Hetja vinnunnar, í gömlum sovéskum stíl. Trúverðugleiki hans þykir hafa beðið hnekki og það hafa verið mótmæli gegn honum á tónleikum í London.
En listamenn sem koma of nálægt einræðisherrum brenna sig oft á því – og slíkt getur verið ómögulegt að laga.
Pútín hengir orðu á Gergiev – Hetja vinnunnar.