Hafi nokkurn tíma sést nefnd sem er líklegt til að komast að engri niðurstöðu, þá er það hin nýja nefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar undir forystu Sigurðar Líndal.
Sigurður er einhver íhaldssamasti maður á Íslandi og fær til fulltingis við sig í nefndinni annan íhaldsmann í gegn, Birgi Ármannsson.
En svo eru þarna líka ákafir talsmenn breytinga á stjórnarskrá eins og Valgerður Bjarnadóttir, Freyja Haraldsdóttir sem sat í stjórnlagráði og Aðalheiður Ámundadóttir, hún er í flokki Pírata.
Jón Kristjánsson var formaður nefndar um breytingar á stjórnarskrá sem sat um miðjan síðasta áratug, en leystist upp vegna ágreinings. Svo er þarna annar fulltrúi Framsóknarflokks, Skúli Magnússon. Hann var í harðri andstöðu við allt stjórnarskrárferlið á síðasta kjörtímabili.
Það mun ganga næst kraftaverki ef þetta fólk getur komið sér saman um eitthvað.