Óborganlegar myndir. Flug Loftleiða til New York, þetta er líklega seint á sjöunda áratugnum eða snemma á þeim áttunda. Það vantar upplýsingar.
Þetta var á tímanum þegar Loftleiðir voru draumafyrirtæki í huga Íslendinga, upphófst af rammleik flugmanna sem stafaði ævintýraljómi af.
Það flaug til Bandaríkjanna og til Lúxemborg, var vinsælt meðal ungs fólks sem vildi komast yfir hafið. Ég hef hitt mikið af Bandaríkjamönnum af baby boomers-kynslóðinni sem flugu með Loftleiðum – Bill Clinton mun hafa verið einn þeirra.
Seinna komu Flugleiðir til skjalanna og svo Icelandair – sagan um hvernig farið var með Loftleiðir er ekki sérlega falleg. Þar kom við sögu fyrirbæri sem hefur verið kallað Kolkrabbinn. En það er ennþá birta yfir þessu félagi.