Maður skyldi ætla að nóvember verði tíðindamikill mánuður í pólitíkinni. Það hefur mikið verið horft til þessa mánaðar.
Ef ég skil rétt á að vera von á áliti frá tveimur sérfræðingahópum.
Annars vegar er það hópur um lækkun húsnæðislána – og hins vegar hópur um afnám verðtryggingar.
Þarna eru komin tvö helstu málin sem ríkisstjórnin var mynduð um, að minnsta kosti frá bæjardyrum Framsóknarmanna.
Og þeim hlýtur að vera nokkuð í mun að koma þessum málum áleiðis miðað við fylgishrun stjórnarinnar. Hún mælist með 46 prósenta fylgi, hefur misst 16 prósentustig síðan í kosningunum fyrir hálfu ári. Framsókn er komin niður í 14 prósent en Sjálfstæðisflokkurinn er með fylgi sitt úr kosningunum, 27 prósent – það þykir slakt á þeim bæ.
Tillögurnar frá starfshópunum þurfa helst að vera þannig að þær séu alvöru, þannig horfir málið við kjósendum. Að í þeim sé til greint hvernig, hvenær, hversu mikið – jú, og handa hverjum. En það getur verið erfitt að gefa skýr svör við því.
Af þessu tilefni má benda á kvæði eftir danska skáldið Henrik Nordbrandt sem nefnist Aaret har 16 maaneder. Það þarf enginn að óttast að skilja ekki dönskuna, þetta er frekar einfalt.