Nú sjáum við glitta í endalok Facebook. Á þessum tæknitímum sem við lifum á endist ekkert lengi.
Unga fólkið hverfur af Facebook, það kýs aðra samskiptamiðla, þar sem það getur verið út af fyrir sig. Foreldrar, ömmur og afar hafa tekið yfir Facebook.
Eins og ágætur vinur minn orðar það svo – á Facebook:
„Hvaða unglingar nenna að vera í sama teiti og foreldrar þeirra. Sem hafa af sinni alkunnu „ákveðni“ lagt FB undir sig.“
Við eldra fólkið getum svosem haldið áfram að vera á Facebook, þrasað þar eins og við eigum lífið að leysa. En á endanum munum við fara í humátt á eftir unga fólkinu.
Því þá verður Facebook hætt að vera hip og kúl – er það reyndar ekki lengur, þessi merkilegi vefur sem byrjaði sem eins konar stefnumótasíða í Harvard.
Svo er reyndar annað sem gæti spilað inn í. Eftir NSA-hneykslið og uppljóstranir Edwards Snowden er traust á Facebook í algjöru lágmarki.