fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Er vit í stórfelldri tómatarækt á Íslandi?

Egill Helgason
Föstudaginn 1. nóvember 2013 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sér fréttir þar sem er sagt frá fyrirætlunum um að byggja risagróðurhús á Hellisheiði – og nú í Grindavík – til að hefja stórfellda framleiðslu á tómötum til útflutnings.

Nú ætla ég ekki að þykjast vera sérfræðingur í ylrækt, en maður er samt smá hugsi yfir þessu.

Kona mín hefur dvalið á Spáni undanfarna viku. Hún sagði mér að hún hefði farið í stórverslun þar sem tómatarnir kostuðu 1 evru kílóið. Þetta átti við um allar tegundir tómata, því úrvalið var býsna fjölbreytt – allir tómatar kostuðu 1 evru kílóið.

Ég velti fyrir mér hvort íslensk tómatarækt sem útheimtir stórar og nokkuð rammgerðar byggingar, raflýsingu og heitt vatn, geti keppt við þetta.

Í því sambandi má benda á þessa grein í Daily Mail þar sem er fjallað um hina stórfelldu grænmetisrækt á Suður-Spáni. Þetta er sólríkasta svæði í Evrópu. Gróðurhúsin eru úr plasti og það kostar ekki mikið að reisa þau. Vinnuaflið er svo nánast ókeypis, launin eru í hæsta lagi fimm þúsund krónur á dag – og mikið af starfsfólkinu ólöglegir innflytjendur frá Afríku sem hafa engan rétt.

Gróðurhús af þessu tagi halda áfram að breiðast út, segir í fréttinni. Myndirnar segja líka sína sögu.

Það væri nokkuð slysalegt ef við Íslendingar lentum í að fara að niðurgreiða tómata ofan í Evrópubúa. Nóg er nú samt.

Menn sem eru fróðir um ræktun hafa raunar sagt við mig að nær væri fyrir Íslendinga, ef þeir vilja rækta til útflutnings, að leggja áherslu á eitthvað sem er mun sérhæfðara, hefur minni markað en er dýrara. Wasabi-rætur voru nefndar, ég sel það ekki dýrar en ég keypti það – en austræn matargerð verður sífellt vinsælli og þar eru notaðar ýmsar jurtir sem aukin spurn er eftir.

La-Tomatino-Spain

Á Spáni er ekki skortur á ódýrum tómötum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki