Það er algjörlega að koma í ljós að Edward Snowden ætti að fá að snúa aftur til Bandaríkjanna sem hetja.
Gott ef hann er ekki verðugur þess að fá heiðursmerki – eða skrúðgöngu fyrir sig á Broadway.
Uppljóstranir hans sýna að stjórnendur njósnaþjónusta hafa gjörsamlega gengið af göflunum. Þar er fremstur í flokki Keith Alexander, forstjóri NSA.
Þar á bæ voru menn að hlera allt og alla, nú kemur í ljós að páfinn var í þeim hópi. Uppljóstranir Snowdens birtast í virtum blöðum eins og Washington Post, það bendir ekki sérstaklega til þess að þær séu glæpsamlegar.
Það er alltaf varasamt þegar leyniþjónustur eru orðnar ríki í ríkinu – við þekkjum mörg dæmi þess.
Meira að segja Obama er hættur að verja þetta athæfi, hann þykist reyndar ekki hafa vitað um að NSA var að hlera erlenda þjóðarleiðtoga eins og Angelu Merkel. Og nú er forsetinn farinn að biðja NSA-menn um að hafa sig hæga.
En það er auðvitað spurning hvort þeir hlýða eða hvort leynipukrið sé orðið alveg stjórnlaust?
Hinn skuggalegi Keith Alexander, forstjóri NSA.