fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Arfleifð Jóns og Besta flokksins í Reykjavík

Egill Helgason
Fimmtudaginn 31. október 2013 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðan í gær hefur verið talað þannig um Jón Gnarr að jaðrar við það sem hefur verið kallað persónudýrkun.

Pólitískir andstæðingar hans eiga ekkert svar við þessu.

Jón er afar snjall grínisti, ég held reyndar að hann hafi ákveðna snilligáfu á því sviði. Og það leika ekki margir eftir að leggja niður stjórnmálaafl sem hefur næstum 40 prósenta fylgi.

Hann hefur líka náð því að verða frægasti borgarstjóri Reykjavíkur fyrr og síðar. Það verður sjálfsagt ekki leikið eftir – borgarstjórar sem komu undan honum virka frekar dauflegir í þessum samanburði.

En svo má benda á nokkra hluti sem máski eru ekki alveg jafn skínandi.

Besti flokkurinn er ekki eiginleg stjórnmálahreyfing. Þetta er hópur vina, eða jafnvel klíka, sem heldur ekki opna fundi eða neitt slíkt. Það er ekki sérlega lýðræðislegt. Besti er miklu nær því að vera listrænn gjörningur en svar við kröfum um aukið lýðræði sem voru uppi eftir hrunið.

Stjórnunarstíll Jóns hefur að miklu leyti verið falinn í því að láta embættismenn um málin. Líklega hefur embættismannakerfið aldrei haft jafn mikil völd og á tíma hans.

Þeir hafa reyndar mikið til síns máls sem segja að Dagur B. Eggertsson hafi verið helsti stjórnandi borgarinnar undanfarin ár. Jón hefur verið táknmyndin, hann hefur veitt innblástur með framgöngu sinni, en Dagur hefur stjórnað – án þess þó að fá mikið kredit fyrir það.

Það er ágætt að minnast þessa og eins hins að í raun hefur ekki orðið nein sérstök breyting á stjórn borgarinnar. Besti flokkurinn hefur ekki verið sérstakt lýðræðis- eða byltingarafl, þótt hann hafi verið kosinn til valda á öldufaldi hrunsins. Það helsta sem hefur verið afrekað í hans tíð er líklega nýtt aðalskipulag, sem er býsna framsækið – en það er ekki síst verk manna eins og Dags B. og Gísla Marteins Baldurssonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu