fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Jón hættir varla við að hætta

Egill Helgason
Miðvikudaginn 30. október 2013 15:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhvern veginn held ég að sé lítið hæft í fabúleringum um að Jón Gnarr vilji láta ganga á eftir sér um að hætta við að hætta í borgarstjórninni.

Það væri frekar úr karakter. Í rauninni er það ansi magnaður gjörningur, í ljósi þess sem á undan er gengið, og eftir kosningasigurinn mikla 2010, að leggja niður stjórnmálaafl sem er með næstum 40 prósenta fylgi.

Líklega er það nánast einstætt í veröldinni.

Jón er almennt mærður fyrir að hætta í pólitík áður en þarf að bera hann út.  Í stjórnmálunum er það yfirleitt á hinn veginn.

Menn hafa verið að líkja þessu við Ólaf Ragnar Grímsson sem hætti vissulega við að hætta. En munurinn er sá að Ólafur Ragnar hefur eytt öllu lífi sínu í að sækjast eftir völdum. Þau eru hans ær og kýr. Í nýrri bók eftir Ólaf Hauk Símonarson, sem nefnist Skýjaglópur skrifar bréf, er bráðskemmtileg lýsing á Ólafi Ragnari og Baldri Óskarssyni í Glaumbæ þegar þeir voru ungir menn.

Þá var Ólafur strax byrjaður að klifra.

Jón fór hins vegar út í pólitíkina og það var partur af gríni sem stækkaði alveg óvænt. Þegar Besti flokkurinn kom fyrst fram um áramótin 2009/2010 bjuggust menn ekki við miklu. Inn í þetta spilaði náttúrlega ógeð á gömlu flokkunum eftir hrunið.

Nú mun fylgið dreifast upp á nýtt. Björt framtíð fær engin 37 prósent þótt hún bjóði fram. Og kannski á Sjálfstæðisflokkurinn betri von en áður, það verður væntanlega meira líf í kringum prófkjör hans um miðjan nóvember en ella. Það er meira í húfi. En um leið má minna á að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aðeins stjórnað Reykjavík í tæplega tvö ár síðan 1994.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu