fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Jón Gnarr tilkynnir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 29. október 2013 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef ég skil rétt ætlar Jón Gnarr að tilkynna hvort hann heldur áfram í stjórnmálum hinn daginn. Þá er víst hrekkjavaka.

Fæst til þess að Jón sé að hverfa úr pólitíkinni, Besti flokkurinn í Reykjavík mælist með 37 prósent í skoðanakönnunum.

Og þótt andstæðingar segi að hann hafi enga stefnu – það má heyra bæði á Sóleyju Tómasdóttur og Hildi Sverrisdóttur – og sumir kalli hann trúð – þá er erfitt að sjá að Jóni og Besta hafi tekist verr upp við stjórn borgarinnar en þeim sem á undan komu.

Enda virðast hinir flokkarnir ekki ná neinu taki á honum. Flugvallarmálið er úr sögunni í bili, boðskapurinn um að sé „þrengt að einkabílnum“ í Reykjavík fær ekki mikinn hjómgrunn. Þótt deila megi um einstök atriði er hið nýja aðalskipulag Reykjavíkur býsna framsýnt plagg, enda var það samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í borgarstjórninni.

En það eru önnur mál sem mætti vel ræða í borgarstjórnarkosningunum. Til dæmis menntamálin. Þau eru alls ekki í nógu góðu horfi. Og svo er það heilsugæslan, eins og staðan er þarf fjöldi borgarbúa að vera án heimilislæknis. Það getur verið erfitt að komast til læknis og fá þjónustu með alvöru eftirfylgni sem getur verið svo mikilvæg.

Það er spurning hvort ekki væri hægt að bæta heilsugæsluna með því að borgin tæki hana yfir.

Besti flokkurinn er náttúrlega engin fjöldahreyfing, hann virkar frekar eins og vinahópur. Nokkrir af hæfustu borgarfulltrúunum eru að hverfa af vettvangi – Óttar Proppé er til dæmis farinn á þing. Það gæti reynst nauðsynlegt fyrir Besta flokkinn að breikka hópinn, fá nýtt fólk til liðs við sig – og þá væntanlega nýjar hugmyndir.

jon_gnarr_1

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð