Íslendingar hafa löngum sýnt nágrönnum sínum á Grænlandi og í Færeyjum lítinn áhuga.
Það hefur verið til eitthvað sem heitir Vestnorræna ráðið, en það verður seint sagt að samstarfið þar hafi verið kraftmikið.
Nú eru Íslendingar hins vegar orðnir áhugasamir um Grænland.
Ástæðan er sú að þeir renna á peningalykt. Þeim sýnist að séu að opnast ýmis viðskiptatækifæri á Grænlandi. Vandinn gæti þó verið sá að Kínverjar erum mættir á undan.