fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Íslendingar í kínversk föt?

Egill Helgason
Sunnudaginn 27. október 2013 12:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fólk sem ég þekki hefur lengi átt hús á Spáni og ég hef farið þangað nokkrum sinnum, þetta er á svæðinu í kringum Alicante þar sem eru stórar byggðir útlendinga.

Ein þróun sem hefur verið áberandi í efnahagskreppunni er mikil fjölgun verslana og veitingastaða sem eru í eigu Kínverja og þar sem starfar einungis fólk frá Kína.

Þetta eru veitingahús sem bjóða hlaðborð fyrir allt niður í 5 evrur á mann. Og svo fatabúðir sem selja vöruna svo ódýrt að enginn getur keppt við þær.

Kínversku veitingahúsin og verslanirnar hafa grafið undan því sem var þarna fyrir. Samkeppnin þaðan bætist ofan á efnahagskreppuna.

Hvernig fara Kínverjarnir að því að hafa þetta svona ódýrt – jú, launakostnaðurinn hjá þeim er sama og enginn, það er vitað að þeir reyna að forðast að borga skatta – og auðvitað eru gæðin mátulega mikil. Fatnaðurinn sem fæst í búðum þeirra er óttalegt drasl, en hann kostar kannski ekki nema 3 evrur flíkin.

Mér varð hugsað til þessa þegar ég las haft eftir framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu að Kínverjar gætu lækkað fatakostnað Íslendinga.

Cobo_141948277

Kínverskar búðir á Spáni. Það þarf ekki fríverslunarsamning til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð