fbpx
Fimmtudagur 26.febrúar 2026
Eyjan

Tími auðræðisins

Egill Helgason
Laugardaginn 26. október 2013 12:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er rétt hjá Stefáni Ólafssyni að auðræði – plútókratí – er helsta þjóðfélagstilraun samtímans.

Þetta hófst með stefnu þeirra Thatchers og Reagans og hefur leitt til þess að hinir ríku verða stöðugt ríkari meðan millistéttin nær ekki einu sinni að standa í stað – þarf að hafa sig alla við í lántökum til að verja kjör sín.

Í Bandaríkjunum er talað um eina prósentið sem á meira en tugir milljóna sem eru nær botninum – eða jafnvel 0,01 prósentið (sjá mynd).

Þetta gerist eftir skeið jöfnuðar í kjölfar seinni heimstyrjandarinnar. Viðhorfið þá var að ungt fólk sem hafði tekið þátt í ófriðnum ætti ekki að snúa heim í skilyrði sem það hafði upplifað á tíma heimskreppunnar.

Nú ímyndar maður sér að enginn vilji samfélag auðræðis – ekki nema þeir sem beinlínis hagnast á því. Það eru þá helst auðmenn og þeir sem hafa verið keyptir til fylgilags við þá. Í þeim hópi eru stjórnmálamenn, fjölmiðlamenn, lobbíistar, lögfræðingar og hagfræðingar sem eru til í að verja þessa þjóðfélagsgerð.

Eins og segir í bandarísku orðatiltæki:

„An honest politician is one who, when he is bought, will stay bought.“

En í raun er álíka erfitt að færa rök fyrir því að svona skuli þetta vera og því að einvaldskonungar á borð við Lúðvík XIV hafi átt rétt á því að eiga líf og limi frönsku þjóðarinnar á 17. öld.

En fólk bæði á hægri og vinstri væng stjórnmálanna ætti að geta sammælst um að svona gengur þetta ekki. Þótt menn aðhyllist markaðshagkerfi, séu eindregnir fylgismenn frjáls markaðar, þá er ekki boðlegt að það skekkist allt í átt til stórfyrirtækja, fjármálastofnana, auðmanna og auðhringa.

plutocracy

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili

Kristín Á. Guðmundsdóttir skrifar: Það dugar ekki að byggja fleiri hjúkrunarheimili
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins

Lilja hafði betur í formannsslag Framsóknarflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu

Jóhann Páll Jóhannsson: Borgarastyrjöld á stjórnarheimili síðustu ríkisstjórnar skapaði margvíslegan vanda í stjórnkerfinu