Forráðamenn 365-miðla skera upp herör gegn efnisveitum eins og Netflix í Fréttablaðinu í dag.
Ólafur Stephensen skrifar leiðara og Ari Edwald skrifar harðorða grein.
Þeir segja að með því að nota slíkar efnisveitur sé fólk að brjóta lög. Þeir nefna bæði lög um höfundarrétt og skattalög.
Tugir þúsunda Íslendinga hafa nú aðgang að þessum efnisveitum, en hann fæst ekki nema með því að skrá ip-tölu erlendis. Þær eru í raun ekki aðgengilegar hér, ekki fremur en iTunes.
Það er náttúrlega mikil mótsögn að ein tölvuvæddasta þjóð í heimi skuli í reynd ekki geta notað slíkar efnisveitur á lögformlegan hátt. Sérstaklega er það skrítið þegar iTunes á í hlut – iTunes er nánast forsenda þess að geta notað Macintosh-tölvur. Fáar þjóðir nota Macintosh-vörur jafn mikið og Íslendingar.
En markaðurinn er svo smár að stórar erlendar efnisveitur sjá engan tilgang í að koma inn á hann. Þess vegna er í gangi þetta svindl – sem þó getur ekki talist mjög alvarlegt. Þeir sem nota Netflix, Hulu Plus og iTunes á Íslandi greiða fyrir aðganginn rétt eins og notendur erlendis, en þeir sem kunna að eiga réttinn á dreifingu efnisins á Íslandi tapa vissulega.
Og þess vegna er þeim mikið niðri fyrir hjá 365. Sjálfri tilveru þeirra er ógnað.
En um leið hljóta menn að líta í eigin barm. Efnisveiturnar íslensku, hjá Vodafone og Símanum, eru afspyrnu lélegar. Úrvalið er mjög slappt og verðið hátt.