fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Flugvallarmálið aftengt?

Egill Helgason
Föstudaginn 25. október 2013 10:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Boðað er til blaðamannafundar í dag þar sem segir að verði kynnt nýtt samkomulag um innanlandsflug.

Á fundinum verða fulltrúar ráðuneyta, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group.

Líklega má búast við því að þarna heyrist í Jóni Gnarr borgarstjóra og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, en hún fer með samgöngumál.

Nú er enn ekki vitað hvað felst í þessu samkomulagi, en innan stjórnmálanna er ríkur vilji til að aftengja flugvallarmálið áður en kemur að borgarstjórnarkosningum í vor.

Sumir hafa vonast til þess að flugvöllurinn verði aðalkosningamálið – þess gætir til dæmis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins en framboðsfrestur þar rennur út í dag – en ef fundið verður samkomulag sem gæti haldið í einhvern tíma verður þeim varla kápan úr því klæðinu.

Flugvallarmálið gengur þvert á flokkslínur og til dæmis er frambjóðendahópurinn hjá Sjálfstæðisflokknum áberandi klofinn gagnvart því. Vitað er að bæði Hanna Birna Kristjánsdóttir og Bjarni Benediktsson hafa haft hug á því að setja málið á ís fyrir kosningar – það er raunar spurning hvort þjóðin þolir öllu meiri umræðu um flugvöllinn og þá geðshræringu sem fylgir henni.

Það verður svo forvitnilegt að sjá hver verður afstaða borgarstjórnarinnar í Reykjavík. Hún er nokkuð samhuga um að vilja flugvöllinn burt, en hin fjölmenna undirskriftasöfnun sem fór fram undir heitinu Hjartað í Vatnsmýrinni hlýtur að hafa einhver áhrif á afstöðu hennar.

rvkflugvollur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð