Greinendur stjórnmála telja sig sjá ákveðið munstur í fjárlagagerðinni og því hvernig umræðan um fjárlögin er að þróast.
Kenningin er svona. Áður en Alþingi samþykkir fjárlögin verða framlög til heilbrigðismála aukin talsvert – kvartanirnar af Landspítalanum eru orðnar að nánast samfelldum klið sem hjómar í fjölmiðlum alla daga. Það liggur við að að þjóðin sé lögst í rúmið af þunglyndi yfir þessu.
Ríkisstjórnin getur varla annað en gert eitthvað í málinu. Og auðvitað verður jákvætt fyrir hana að rétta hag heilbrigðiskerfisins – þetta getur jafnvel fallið undir það sem kallast væntingastjórnun.
En á móti er ekki við því að búast að hlutur annarra sem hafa orðið fyrir niðurskurði verði leiðréttur að marki. Þar verður líklega frekar bætt í niðurskurðinn – og réttlætt með að fé hafi fundist fyrir spítalann.
Landspítalinn fær væntanlega meira á fjárlögum en ætlað var, sumir aðrir minna.