Ég var búinn að ímynda mér að ég myndi fara fyrir flokki Íslendinga til Grikklands þegar þjóðirnar lékju um sæti í heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Að fólkið myndi skoða Akrópólis, Lýkabettos og Plaka þegar það fengi tíma frá íþróttunum.
En þetta á ekki að verða, við fengum Króatíu.
Kannski eigum við alveg jafn mikla (litla) möguleika á að vinna Króatíu og Grikkland – en Grikkirnir eru skemmtilegri mótherjar.
Króatar virka harðir og miskunnarlausir. Það er meira að segja kalt í Króatíu á veturna, svo nóvemberveður á Íslandi setur leikmennina þaðan ekki úr jafnvægi.
Er ekki eini möguleikinn að Króatar vanmeti Íslendinga – sem á pappírnum eru með langveikasta liðið í riðlinum. Króatía er númer 15 á styrkleikalista landsliða, Ísland númer 46.
Luca Modric er frægasti leikmaður Króata. Þeir hafa oft átt harðsnúin landslið, voru til dæmis í þriðja sæti á HM 1998.