Hvaða leið leggur Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn til svo ríki geti náð jafnvægi í ríkisfjármálum?
Áður fyrr var niðurskurður yfirleitt aðferð AGS, en í nýrri skýrslu um skuldir ríkja er lögð til önnur aðferð.
Að skattleggja ríkt fólk og auðfyrirtæki.
Í skýrslunni segir að svigrúm sé meðal þróaðra ríkja til að taka meiri skattfé frá ríku fólki, það sé líka mikilvægt til að niðurskurður hafi lögmæti í augum almennings.
Í Bandaríkjunum væri hægt að afla mikils fjár með þessum hætti, þótt skattar á ríkt fólk yrðu ekki hækkaðir umfram það sem var snemma á níunda áratugnum.